Málmey SK 1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með um 127 tonna afla. Það voru um 71 tonn af þorski, um 39 tonn af ýsu og um 5 tonn af ufsa, en minna í öðrum tegundum.

Málmey var meðal annars á veiðum við Djúpkrók, Halann og vestan við Sporðagrunn.

“Það var hægt að fá þorsk ef maður vildi, fínasta veiði af honum. Við vorum aðeins að skammta okkur hann og leita að öðrum tegundum þess á milli. En þetta var fínasti túr, það gekk allt upp” Sagði Hermann Einarsson, skipstjóri. Hann sagði einnig veðrið hafa verið ágætt allan tímann, kannski tveir dagar í smá brælu.