Takið daginn frá!

Umhverfisdagur FISK Seafood verður þann 9. maí árið 2026 og sem fyrr hvetjum við alla til þess að mæta og styrkja sitt íþróttafélag.

Árið 2025 mættu 927 manns á öllum aldri og söfnuðu samtals 21,4 tonnum af sorpi víðs vegar um Skagafjörð og voru rúmlega 11 milljónir króna samtals greiddar í styrki til 16 íþróttafélaga!

En frá því að fyrsti Umhverfisdagurinn árið 2021 var haldinn hafa yfir 70 tonn af rusli verið fjarlægð úr náttúrunni í Skagafirði.

Frekari upplýsingar varðandi Umhverfisdag verða birtar þegar nær dregur.