Sigurborg SH 12 kom í land í Grundarfirði á sunnudagsmorgun með rúmlega 82 tonna afla, þar af rúm 31 tonn af ýsu, tæp 19 tonn af þorski og rúm 18 tonn af skarkola.
Sigurborg var á veiðum við Flökin og Vestur af Garðskaga.
“Það gengur eiginlega of vel.” Sagði Ómar Þorleifsson, skipstjóri, kíminn. “Við byrjuðum við Flökin eins og undanfarið en færðum okkur svo að Garðskaga til þess að reyna að fá kola. Veiðin gekk mjög vel þrátt fyrir leiðindaveður, suð-vestanátt og mikill stjór og leiðindi einkenndu túrinn. Veturinn er loksins mættur.”