Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun. Afli veiðiferðarinnar var í heildina tæp 155 tonn, þar af tæp 70 tonn af þorski og rúmlega 51 tonn af ýsu en minna í öðrum tegundum.
“Við hófum veiðar á Halanum og þar veiddist vel af þorski. Síðan var myrkrið tekið í Nesdýpi og kroppað aðeins af steinbít og kola. Eftir það værðum við okkur í Víkurálsholu en þar var mjög líflegt af blönduðum afla. Svo enduðum við túrinn í fínni ýsuveiði á Straumnesbanka.” Sagði Ágúst Óðinn Ómarsson, skipstjóri.