Farsæll SH 30 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun. Heildarmagn afla voru tæp 70 tonn, þar af rúm 27 tonn af ýsu, tæp 17 tonn af skarkola og rúm 16 tonn af þorski, en minna í öðrum tegundum. Farsæll var aðallega á veiðum vestur af Garðskaga og við Flökin.
Guðmundur Kristján Snorrason, skipstjóri, sagði veiðina hafa gengið þokkalega en það hafi verið leiðindaveður allan tímann nema rétt í blálokin. “Við vorum vestur af Sandgerði að reyna við kola og svona bland og enduðum svo við flökin og kláruðum skammtinn þar. Veiðin gekk vel þrátt fyrir veður, það er fiskur úti um allt!”.