Arnar HU 1 kom til löndunar á Sauðárkrókshöfn í morgun með rúmlega 570 tonna afla. Þar af voru um 227 tonn af gullkarfa, um 136 tonn af ýsu, um 100 tonn af þorski, um 48 tonn af ufsa og um 20 tonn af djúpkarfa. Það gera í heildina 19.720 kassa og heildarverðmæti veiðiferðarinnar var um 315 milljónir.
“Túrinn gekk ágætlega heilt yfir.” Sagði Bárður Eyþórsson, skipstjóri. “Við vorum á veiðum alveg frá Reykjafjarðarál og suður í Skerjadýpi og allt þar á milli. Veiðin var mjög góð, helstu vandamálin voru of mikið af þorski í bland við ýsuna, en þetta gekk allt upp þrátt fyrir það. Það er fiskur úti um allt núna, hann er búinn að þétta sig mikið vegna loðnunnar, og svo er bjartara yfir ýsuveiði en hefur verið undanfarið. Í lok veiðiferðarinnar fórum við svo í leit að karfa á Melsekk og þar var nóg að fá, alveg upp í 20 tonn á tímann.”
Aðspurður sagði Bárður veðrið hafa verið fínt allan túrinn, en viðurkenndi reyndar að þar sem síðustu daga hefði verið blíðuveður væru þeir fljótir að gleyma bræludögunum.