Málmey SK 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með um 90 tonn af afla, þar af var meirihlutinn, eða um 74 tonn, þorskur. Málmey var á veiðum við Grímsey, Digranesflak og á Sléttugrunni. Veðrið lék ekki við Málmeyjarmenn í þessum túr, en að sögn Davíðs Þórs Helgasonar, bátsmanns, var veðrið hundleiðinlegt allan tímann og gerði þeim erfitt fyrir í veiðinni.