Málmey SK 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með 54 tonn af afla, þar af voru 41 tonn af þorski. Málmey var á veiðum á Sléttugrunni og Sporðagrunni.
“Þetta var bara erfiður brælutúr, það er ekki annað hægt að segja um þennan túr.” Sagði Þórarinn Hlöðversson, skipstjóri. “Við fórum út í þokkalegu veðri en svo brældi upp og kom hvert skotið á fætur öðru, við vorum bara á hægri keyrslu, vorum svolítið í því að halda sjó bara, það liðu alveg upp í 14 tímar á milli þess sem við gátum kastað.”