Drangey SK 2 hefur tekið á sig nýtt og áberandi útlit. Á stefninu hefur verið málað stórt listaverk sem sýnir opinn hákarlsmunn, þannig að skipið virðist bókstaflega bíta sig í gegnum sjóinn.
„Við vildum gera eitthvað sem fangar augað og vekur forvitni,“ segir Friðbjörn Ásbjörnsson, framkvæmdastjóri FISK Seafood. „Hákarlsmunnurinn er táknrænn fyrir kraft og óútreiknanleika hafsins, sem er kjarninn í okkar starfsemi.“
Mikil leynd hefur hvílt yfir verkefninu og aðeins fáir innan fyrirtækisins vissu af framkvæmdinni fyrirfram.
Að sögn Friðbjörns er þetta hluti af nýrri nálgun fyrirtækisins til að tengja saman list og sjávarútveg, og skapa umræðu um mikilvægi hafsins í íslensku samfélagi. Listaverkið byggir á áður óbirtum skissum eftir hinn heimsþekkta japanska listamann Katsushika Hokusai, sem þekktur er fyrir verk sín tengd sjónum og sjávarlífi. Skissurnar fundust nýlega í einkasafni í Tókýó og hafa verið aðlagaðar að íslenskum aðstæðum í samstarfi við sérfræðinga.
Viðbrögð bæjarbúa hafa verið lífleg, og hefur fjöldi fólks lagt leið sína niður að bryggju til að skoða verkið nánar. Myndir af skipinu hafa einnig farið hratt á flug á samfélagsmiðlum, þar sem margir hafa lýst bæði undrun og aðdáun á framtakinu.
Listaverkið verður á skipinu að minnsta kosti út vertíðina og ekki er útilokað að fleiri verkefni af svipuðum toga líti dagsins ljós á næstunni.
Drangey heldur til veiða núna kl 10:00 í dag og er fólk hvatt til þess að leggja leið sína niður á bryggju þegar skipið leggur úr höfn til þess að bera listaverkið augum á siglingu. Fólk er þó beðið um að koma sér fyrir á norður-bryggjunni til að trufla ekki starfsemi á höfninni.