Arnar HU 1 á landleið

Arnar HU 1 er væntanlegur í land við Sauðárkrókshöfn í fyrramálið með afla að verðmæti 283 milljón króna. Heildarmagn afla úr sjó eru 430 tonn sem gerir um 13.500 kassa. Uppistaða aflans eru um 140 tonn af ýsu, um 100 tonn af gullkarfa, um 100 tonn af þorski og um 80 tonn af ufsa.

“Túrinn einkenndist svolítið af flótta undan veðri, en það var því miður ekki með besta móti þennan túrinn. Við byrjuðum á því að fara austur og fengum þar ufsa í Berufjarðarál og í Lónsdýpi. Svo héldum við suður á Mýrargrunn áður en við þurftum að flýja norðurleðina undan veðri. Svo Fórum við vestur og fengum ýsu og þorsk á Látragrunni, karfa í Kolluál og ufsa og ýsu á Eldeyjarbanka.” Sagði Kristján Ýmir Hjartarson, stýrimaður. Aðspurður um hvernig páskarnir hefðu verið um borð sagði Kristján að um páskahelgina hefði verið fín veiði og blíðuveður. Allir skipverjar fengu páskaegg og Gunni Kokkur (Gunnar Sveinn Halldórsson) galdraði fram veglega páskaveislu fyrir mannskapinn.