Farsæll SH 30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH 30 kom í land í gær og hófst löndun við Grundarfjarðarhöfn í morgun. Farsæll var með um 68 tonna afla, þar af um 23 tonn af ýsu, um 18 tonn af þorski og um 10 tonn af karfa.

Farsæll var meðal annars á veiðum í Víkurálsholu og á Malarrifi. En þegar skip eru á veiðum á Víkurálssvæðinu er oft talað um að þau séu í kringum Caesar, Þetta nafn er dregið af breska togaranum Caesari frá Hull sem strandaði á Arnarnesi úti af Ísafirði í kringum 1970. Ekki var talið borga sig að gera við skipið og átti að draga það út á rúmsjó til þess að sökkva því. Hinsvegar komst skipið aldrei lengra en í Víkurál, þar komst sjór að því, og það sökk ofan í ágætis fiskimið (48. tölublað Fiskifrétta árið 2002, grein eftir Kjartan Stefánsson).

Heimildum ber þó ekki alveg saman um þessa sögu því í grein í Mannlífi 22. júní 2021 er þess getið að skipið hafi átt að sigla til Bretlands, en þegar skipið strandaði lak úr því mikil olía og talið er að um 3000 fuglar hafi drepist á svæðinu vegna þessa. Skipið hafi svo verið dregið af stað án þess að huga nokkuð að olíutönkunum og þótti Vestfirðingum það heldur glannalegt.

UMHVERFIS-
DAGUR