Málmey SK 1 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í dag með 184 tonn af afla, þar af voru um 119 tonn af ýsu, um 24 tonn af þorski og um 18 tonn af karfa, en minna í öðrum tegundum en Málmey var á veiðum á Melsekk og Selvogsbanka.
“Við þurftum ekki einu sinni að reyna að veiða ýsuna. Það var meira en nóg af henni, hinsvegar lítið um þorsk.” Sagði Hermann Einarsson, skipstjóri. Hann sagði einnig að veðrið hefði verið fínt allan túrinn, en það hefði aðeins byrjað að blása í gærkvöldi. Nú bíða þeir eftir næstu áhöfn við bryggjuna í Grundarfirði en þar er hinsvegar slagviðri og urðu skipstjóri og stýrimaður hundblautir þegar þeir ætluðu að líta yfir í næsta skip.
Davíð Þór Helgason, undirstýrimaður, sendi myndina sem fylgir fréttinni á dögunum, en hún var tekin í síðustu löndun Málmeyjar í Grundarfirði. Þar virðist Málmey frekar lág í loftinu miðað við það sem fólk kannast við að sjá við Sauðárkrókshöfn. En ástæðan er sú að í Grundarfirði er mun meiri munur á flóði og fjöru en í Skagafirði. En á þessum árstíma getur munað rúmlega 4 metrum á flóði og fjöru í Grundarfirði þegar mest lætur, á meðan hámarksmunur á sama tímabili við Sauðárkrókshöfn eru tæplega 1,5 metrar (tide-forecast.com).