Málmey SK 1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK 1 er á landleið með rúmlega 140 tonn og er löndun áætluð í fyrramálið á Sauðárkrókshöfn, uppistaða aflans voru tæp 90 tonn af þorski, um 22 tonn af ýsu og um 18 tonn af karfa en minna í öðrum tegundum.

“Þetta var ágætis túr, veiðin gekk bara vel. Við fórum frá Grundarfirði austur fyrir land í þorskveiði. Tókum smávegis karfa í byrjun. Veiðin gekk vel en túrinn er langur, ætli við siglum ekki einhverjar 700 mílur í þessum túr.” Sagði Ólafur Bjarni Haraldsson, yfirstýrimaður. Veðrið hefur einnig verið ágætt hjá þeim, en það er aðeins farið að bæta í vind núna sem lengir hjá þeim heimferðina.

Málmey hóf veiðina við Grindavíkurdýpi en færði sig svo á Hvalbaksgrunn, sem er suð-austur af Höfn í Hornafirði svo siglingin heim er ansi löng. En fyrir einskæra heppni þurfa Málmeyjarmenn ekki að hafa áhyggjur af matarkostinum á þessari siglingu vegna þess að þeir fengu í trollið fullan poka af kartöflum, sem má sjá á myndinni hér að neðan ásamt fætinum á Rúnari Kárasyni, háseta, sem hafði orð á því að þetta væri einhver sá furðulegasti afli sem hann hefði fengið.

UMHVERFIS-
DAGUR