Arnar HU 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í dag með 576 tonn, þar af um 340 tonn af ýsu, um 135 tonn af gullkarfa, um 48 tonn af þorski og um 28 tonn af ufsa. Verðmæti aflans eru um 390 milljónir og kassafjöldi 17.814.
“Þetta var hörku túr, bara draumi líkast.” Sagði Reynir Pálsson, yfirstýrimaður. “Það var bara fiskerí frá fyrsta degi og áhöfnin á hrós skilið fyrir þennan túr. Það var mikið álag á þeim. Þetta er hörku fólk”.
Arnar hóf veiðiferðina á Eldeyjarbanka en færði sig svo á Selvogsgrunn þegar hrygningarstoppi var aflétt, eins og allur floti landsins. Reynir sagði að hann hefði sjaldan upplifað aðra eins mokveiði og giskaði á að flotinn hafi mokað upp einhverjum 2500 tonnum á tíu dögum. Þeir enduðu svo túrinn aftur á Eldeyjarbanka svo það var lítið flakk á þeim í þetta skipti, enda veiði og veður gott, nema örlítill kaldi í blábyrjun veiðiferðarinnar.