Farsæll SH 30 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn á laugardag og löndun fór fram á sunnudag, í skipinu voru um 78 tonn, þar af um 25 tonn af ýsu, um 20 tonn af þorski og um 19 tonn af ufsa.
Farsæll hóf veiðiferðina við Flákahorn en færði sig svo vestur fyrir Garðsskaga, þá á Jökultungu og enduðu túrinn á sunnanverðum Kanti.
Guðmundur Kristján Snorrason, skipstjóri, sagði veiðiferðina hafa gengið vel. “Við byrjuðum við Garðsskaga og tókum þar ýsuna og það slæddist svolítið af þorski með. Svo enduðum við túrinn í karfa á Tungunni í blíðskaparveðri.”