Umhverfisdagurinn var haldinn þann 9. maí og tókst með ágætum. Þátttakendur voru 972 og tíndu samtals 18,48 tonn af rusli. Í staðinn styrkir FISK Seafood 16 íþróttafélög um samtals 11.664.000 kr!
Þakka ykkur kærlega fyrir þátttökuna, þetta væri ekki hægt án ykkar!
Davíð Már Sigurðsson var á myndavélinni þennan daginn og setti saman þetta skemmtilega myndband.