Farsæll SH 30 er á landleið og mun landa við Grundarfjarðarhöfn í dag um 84 tonnum, aflinn er að meirihluta karfi, eða um 65 tonn.
Farsæll var á veiðum á Nætursölunni, en það er veiðisvæði sem er aðeins opið á nóttunni eða frá kl. 20:00 til 08:00 og líklega er nafnið dregið af þeim reglum. En Guðmundur Kristján Snorrason, skipstjóri sagði túrinn hafa gengið mjög vel. Þeir voru rétt rúman sólarhring á karfaveiðum, það tók ekki langan tíma að fylla skipið. Veðrið hefur einnig verið fínt hjá þeim og nú landa þeir í hvelli og drífa sig svo aftur af stað í kvöld.