Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 kom til hafnar á Sauðárkróki í gær og löndun fer fram í dag. Drangey var með 163 tonn af afla sem var að mestu leyti þorskur, eða um 112 tonn.

Drangey var á veiðum á Halanum og Látragrunni.

“Við hófum veiðar á halanum í leit að þorski og ufsa en veiðarnar fóru hægt af stað þar sem veðrið var leiðinlegt, en við höfðum frétt af góðri blöndu á þessu svæði svo við héldum áfram að reyna og þegar veðrið batnaði fór að fiskast mjög vel af góðum þorski, sem er kominn á svæðið í ætisleit eftir hrygningu. Ufsinn lét hinsvegar lítið sjá sig.” Sagði Ágúst Óðinn Ómarsson, skipstjóri. “Þegar þorsk-skammturinn kláraðist leituðum við svo að ýsu en það var heldur rólegt yfir því.”