Farsæll SH 30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH 30 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í gær og hóst löndun úr skipinu í morgun. Farsæll var með 82 tonna afla, nær eingöngu karfa, eða um 77 tonn.

Farsæll var rétt rúman sólarhring á veiðum og hélt sig allan tíman á veiðisvæði sem kallast Wilson.

“Þetta gekk bara ljómandi vel, við vorum eldsnöggir að sækja þennan karfa. Fín veiði þarna á Wilson.” Sagði Guðmundur Kristján Snorrason, skipstjóri. Hann sagði að það hefði verið leiðinda suð-austan kaldi þarna en svo hefði veðrið heldur betur batnað á heimstíminu og sjórinn spegilsléttur þegar hann silgdi inn Breiðafjörðinn.