Málmey SK 1 er á landleið með 167 tonna afla og er væntanleg að Sauðárkrókshöfn í dag og löndun fer fram á morgun. Aflinn samanstendur af um það bil 60 tonnum af þorski, 39 tonnum af karfa, 37 tonnum af ufsa og 18 tonnum af ýsu.
Málmey var meðal annars á veiðum á Nesdýpishrygg og á Víkuráli.
“Veiðin fór frekar rólega af stað fyrstu tvo dagana, en eftir það var bara fínasta veiði. Við byrjuðum á einu holi á Tungunni, en færðum okkur svo í Nesdýpi. Það var svo góð veiði í karfa á vesturhorni Víkuráls og ágætis ýsukropp á Nesdýpishrygg. Við enduðum svo túrinn í þorski og ufsa á Kantinum vestan við Halann.” Sagði Friðþjófur Jónsson, yfirstýrimaður.