Arnar HU 1 á landleið

Arnar HU 1 er væntanlegur í land á Sauðárkróki í nótt með 552 tonna afla og löndun er fyrirhuguð í fyrramálið. Aflinn, sem telur rúmlega 19.200 kassa, samanstendur af um 247 tonnum af gullkarfa, um 130 tonnum af ýsu, um 102 tonnum af þorski og um 69 tonnum af ufsa. Verðmæti aflans eru rúmar 320 milljónir.

“Við vorum allan túrinn fyrir vestan og fengum karfa í Víkuráli, Wilson og Kolluáli. Færðum okkur svo í ýsuveiðar á Látragrunni, Reykjafjarðarál og í Pollinum. Svo fengum við þorsk í kantinum við Halann og aðeins ufsa á Vesturhorninu.” Sagði Kristján Ýmir Hjartarson, yfirstýrimaður. “Veiðin gekk heilt yfir ágætlega og veðrið var með allra besta móti. Það var rjómablíða nánast alla veiðiferðina.”

Myndina, sem sýnir vel rjómablíðuna, tók Emil Sigurður Magnússon, skipverji á Júlíusi Geirmundssyni ÍS 270, þegar þeir mættu Arnari á Látragrunni.