Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki í dag 92 tonnum. Uppistaða aflans er þorskur, eða um 81 tonn, svo voru þeir með um 4 tonn af ufsa, um 3 tonn af ýsu og rúmt tonn af karfa.

Drangey hélt sig lengst af við Þverálshorn en kastaði einnig í Þverál og endaði veiðiferðina svo á einu togi af karfa á Hornbanka.

Halldór Þorsteinn Gestsson, skipstjóri, sagði veiðina hafa verið mjög góða, næstum því of góða miðað við skammtinn sem þeim var settur fyrir þessa veiðiferð. Þeir héldu sig á Þverálshorninu allan tímann og veðrið var mjög gott.

Drangey