Málmey SK 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með um 145 tonna afla, þar af um 67 tonn af ufsa, um 60 tonn af þorski og um 9 tonn af karfa.
Málmey var á veiðum á Kantinum vestan við Hala, á Þveráli og á Þverálshorni.
“Þessi túr gekk bara mjög vel, við lentum strax í góðri veiði og allt gekk upp.” Sagði Þórarinn Hlöðversson, skipstjóri. “Það var blíðuveður líka, spegilsléttur sjór, fín veiði á Þverálnum og þorskveiði í Þverálshorninu. Það var bara veiði sama hvar maður beitti sér.”