Málmey SK 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með rúm 90 tonn af afla, þar af voru um 60 tonn af þorski og um 21 tonn af ýsu en minna í öðrum tegundum. Málmey var meðal annars á veiðum á Þverálshorni og Strandagrunni.
Þetta var síðasta veiðiferð Málmeyjar fyrir sumarstopp og þá eru allir togarar FISK Seafood stopp yfir sumarið, nema Arnar HU sem rær áfram eftir sínu plani allt árið. Vinnslurnar hjá FISK fara einnig í sumarstopp þegar vinnslu síðasta afla hefur verið lokið.