Málmey SK 1 kom til löndunar á Sauðárkróki í morgun með 115 tonn. Þar af voru um 72 tonn af þorski og um 29 tonn af ýsu en minna í öðrum tegundum. Málmey var meðal annars á veiðum á Skagagrunni og Norður af Kolbeinsey.
“Það var bara ágætis veiði, svosem ekkert mikil í þorskinum, bara svona gott tonn á tímann, nema síðustu nóttina þá tvöfaldaðist það. Veðrið var fínt og allir hressir eftir sumarstoppið, örlítið bilerí en ekkert til að tala um”. Sagði Hermann Einarsson, skipstjóri.