Málmey SK 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í dag með 146 tonn og þar af 121 tonn af þorski og 12 tonn af ufsa, Málmey var á veiðum á Kantinum vestan við Hala og Norður við Hraun.
“Þetta var bara góður túr.” Sagði Þórarinn Hlöðversson, skipstjóri. ” Við fórum fyrst vestur á Hala og þar var róleg veiði fyrstu dagana. Svo fluttum við okkur norður að Hrauni og þar var mjög góð veiði. Veðrið var gott og allt gekk upp.”
Þessi túr var óeðlilegur að því leiti að í aflanum var ekki ein einasta ýsa, aðspurður segir Tóti að það sé vissulega óvenjulegt en það sé yfirleitt lítið um ýsu á halanum og þeir hafi ekkert farið inn á grunnslóð þar sem ýsan haldi sig alla jafna. Þrátt fyrir það sé mjög óvenjulegt að engin ýsa slæðist í meðafla, en hann vildi ekki giska á ástæðuna fyrir því.