Drangey SK 2 kom til hafnar á Sauðárkróki í gær og verður landað úr skipinu í dag. Drangey var með 194 tonna afla, þar af 181 tonn af þorski og var skipið eingöngu á veiðum norðan við Kolbeinsey í blíðuveðri, enda var þar mokveiði, sérstaklega fyrstu tvo dagana en svo róaðist veiðin aðeins, að sögn Halldórs Þorsteins Gestssonar, skipstjóra.
Í morgun mátti svo sjá annað skip við Sauðárkrókshöfn, keimlíkt Drangey nema að lit, en það skip nefnist Akurey RE 3 og er gert út af Brim. En Drangey og Akurey eru báðar smíðaðar í Tyrklandi á svipuðum tíma, en hin síðarnefnda er aðeins minni en Drangey, eða tæpir 52 metrar að lengd og tæp 1830 brúttó-tonn en Drangey er 62,5 metrar og 2081 brúttótonn.