Sigurborg SH 12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH 12 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í mogun með 78 tonna afla sem samanstóð af 21 tonni af þorski og sama magni af ýsu, um 11 tonnum af karfa og um 9 tonnum af ufsa. Sigurborg var meðal annars á veiðum vestan við Nes, á Herðatré og Látragrunni.

“Það var svolítið bilunarvesen eftir sippinn, smá byrjunarörðugleikar. En veiðin gekk bara ágætlega þrátt fyrir það. Við byrjuðum við Nesið og svo út af Vestfjörðum, enduðum svo í steinbít við Látragrunn. Það var svolítil sunnan-átt í restina en annars var veðrið bara fínt.” Sagði Ómar Þorleifsson, skipstjóri.