Drangey SK 2 kom í land við Sauðárkrókshöfn í gær og fer löndun fram í dag. Drangey kom með um það bil 145 tonn af fiski, þar af um 125 tonn af þorski, um 6 tonn af ýsu og um 5 tonn af ufsa.
Drangey hóf veiðiferðina austur á Digranesflaki þar sem þeir lentu í góðri veiði, að sögn Guðmundar Ágústs Guðmundssonar, stýrimanns. Þeir reyndu víða við ýsu og ufsa en veiðin var treg í þeim tegundum, hinsvegar var góð veiði í þorski og blíðuveður um allan sjó.