Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með tæp 96 tonn af afla, sem var nær eingöngu þorskur, eða um 84 tonn af honum. Næst mest var af ýsu, um 4 tonn.

Drangey hóf túrinn á Litlagrunni fyrir austan, en tafðist aðeins á veiðum vegna bilunar og þurfti að fara að landi í Seyðisfirði til þess að sækja varahlut, en viðgerð gekk vel og veiðum var fljótlega haldið áfram. Þá á Digranesflaki. Á leiðinni heim var kastað á Sléttugrunni.