Sigurborg SH 12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH 12 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun með um 74 tonn. Aflinn samanstóð af um 23 tonnum af þorski, sama magni af ýsu, um 9 tonnum af skarkola og um 7 tonnum af karfa en minna í öðrum tegundum. Sigurborg var meðal annars á veiðum á Nesdýpi og Grunnkanti.

“Þetta gekk bara ágætlega. Við byrjuðum á Breiðafirði, færðum okkur svo á Vestfjarðarmið og enduðum aftur á Breiðafirði, það var ágætis kropp bara. Tíðindalítill túr og þægilegur.” Sagði Ómar Þorleifsson, skipstjóri. En skipið var stopp á dögunum vegna bilunar og þá þurfti meira að segja að draga það í land, svo skipverjarnir á Sigurborgu voru fegnir því að fá rólegan túr í skaplegu veðri.