Farsæll SH 30 kom til löndunar í Grundarfirði í morgun með um 56 tonn, þar af voru um 18 tonn af ýsu, um 15 tonn af þorski og um 8 tonn af karfa en minna í öðrum tegundum. Farsæll hóf túrinn á Norðurkanti og í kringum Bjarg en færði sig svo á Grunnkant þar sem hann var í ágætis kroppi en endaði túrinn svo á Flökunum.