Málmey SK 1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með um 92 tonn. Uppistaða aflans var þorskur, eða um 81 tonn af honum, svo voru um 4 tonn af ýsu og um 2 tonn af karfa en minna í öðrum tegundum.

Málmey var á veiðum á Sléttugrunni, Rifsbanka og á Kjölsenbanka, en þessi fiskimið eru öll staðsett norður af Raufarhöfn.