Málmey SK 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með 112 tonna afla, að mestu þorsk, eða um 102 tonn.
Það bar svo til að Björn Jónasson, skipstjóri, reri skipinu í þessari veiðiferð til afleysinga, en hann hefur setið í frekar helgum steini síðastliðin tvö ár. Þegar hann var inntur eftir fréttum úr veiðiferðinni, þar sem gleymst hafði að skrá staðsetningar í aflaskeyti til fréttaritara, sagði hann það algjöran óþarfa. Það sæist vel á aflanum hvar hann hefði verið – í Dauðadal. Sá dalur ku vera staðsettur á Sporðagrunni, í þetta skiptið allavega.
Annars var Björn hæstánægður með túrinn. Hann sagði blíðu hafa verið allan tímann og kokkinn trekk í trekk hafa eldað uppáhaldsmatinn hans. Aðspurður hvort þetta hefði þá verið hans síðasti túr var svarið skýrt: „Nei, alls ekki. Þetta er svo gaman.“
Málmey tekur nú örlitla pásu frá veiðum, en í kvöld heldur hún til Akureyrar þar sem skipið fer í slipp. Þar verður meðal annars unnið að viðgerð á stýrisbúnaði ásamt öðru viðhaldi áður en haldið verður aftur til veiða.