Arnar HU 1 landar á Sauðárkróki

Arnar HU 1 kom til löndunar á Sauðárkrókshöfn í morgun eftir að hafa beðið af sér versta veðrið á Hótel Grænuhlíð, með rúmlega 489 tonna afla. Þar af voru um 188 tonn af gullkarfa, um 131 tonn af ýsu, um 95 tonn af þorski og um 71 tonn af ufsa. Það gera í heildina 17.000 kassa og heildarverðmæti veiðiferðarinnar var um 300 milljónir.