Farsæll SH 30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH 30 kom til löndunar í Grundarfirði á þriðjudag með tæp 50 tonn af afla, þar af um 20 tonn af ýsu, um 9 tonn af karfa og um 7 tonn af þorski. Farsæll var meðal annars á veiðum á Grunnkanti og Straumnesbanka.

Guðmundur Kristján Snorrason, skipstjóri, sagði túrinn hafa gengið mjög rólega. Það hafi verið hundleiðinlegt veður og þeir hafi hrökklast norður fyrir Horn og endað á að reyna við ýsuna þar, en veiðin var róleg eins og oft vill vera þegar veðrið lætur svona.