Farsæll SH-30 kom til löndunar í Grundarfirði í morgun með um 58 tonna blandaðan afla. Þar af voru um 18 tonn af karfa, um 15 tonn af ýsu og um 11 tonn af þorski, en minna af öðrum tegundum.
Farsæll hóf veiðiferðina á Norðurkanti og Flökunum en leitaði víðar eftir afla þegar leið á túrinn. Kastað var meðal annars á Látragrunni og Grunnkanti áður en haldið var norður að Herðatré. Veðrið setti þó töluvert strik í reikninginn.
„Þetta var svona ekta haustskrap,“ sagði Guðmundur Kristján Snorrason, skipstjóri. „Við fórum frá Breiðafirði og norður að Herðatré en komumst eiginlega ekkert lengra en það. Þar var bara haugasjór og leiðindaveður – og veiðin eftir því. “
Það þurfti því bæði að hafa fyrir aflanum og leita nokkuð víða eftir honum í þessari veiðiferð. Engin ein tegund bar höfuð og herðar yfir aðrar og aflinn endurspeglaði vel það sem Guðmundur kallaði haustskrapið – sitt lítið af hverju, tínt saman á nokkrum veiðisvæðum. Þrátt fyrir leiðindaveður og heldur rólega veiði hafðist þó að fylla körin áður en stefnan var tekin aftur til Grundarfjarðar.