Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með um 146 tonna afla, þar af voru um 132 tonn af þorski en lítið í öðrum tegundum.

Drangey hóf veiðiferðina á Sporðagrunni í frekar leiðinlegu veðri, norðanátt upp á 25 m/s og rólegri veiði. Daginn eftir skánaði veðrið og þá var haldið norður á Hraun þar sem var veiðin var betri. “

Það var þokkalegur afli þar, engin læti en drjúgt.” Sagði Guðmundur Ágúst Guðmundsson, stýrimaður.

“Þegar veiðin fór að minnka þar færðum við okkur yfir á Ostahrygg og restuðum túrinn þar síðasta sólarhringinn, veiðin var rétt norðan við tonn á tímann.”