Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með um 119 tonn af fiski, þar af voru 111 tonn af þorski svo það var ósköp lítið í öðrum tegundum.
Drangey hóf þennan túr þó í ufsaleit á tungunni, að sögn Ágústs Óðins Ómarssonar, skipstjóra, en það var lítið að fá af honum svo þeir skiptu yfir í þorskinn og leituðu að honum á Ostahrygg, Litlahrygg og norður af Kolbeinsey, en enduðu á Sléttugrunni sem gaf ágætis þorskafla. Þá segir Gústi að veðrið hafi verið einsleitt í þessum túr, suð-vestan vindur á miðunum flest alla daga.