Málmey SK 1 kom til löndunar á Sauðárkróki í morgun með 133 tonna afla, aðallega þorsk eða um 106 tonn af honum. Síðan voru um 9 tonn bæði af ýsu og ufsa.
Enn eina ferðina var afleysingaskipstjóri við stjórnvölinn, en í þetta skiptið var það Friðþjófur Jónsson, sem er þó vel kunnugur skipinu því hann hefur starfað þar sem yfirstýrimaður í rúmlega ár.
Friðþjófur sagði túrinn hafa gengið ljómandi vel, þeir hafi haldið sig á sama stað -djúpt vestur af Sléttugrunni í fínni þorskveiði, og lítið þurft að færa sig til eftir afla. Veðrið hafi þá verið fínt nema einn dag þegar skall á suð-vestan kaldi. Veiðiferðin var svo enduð grunnt á Sléttugrunni í blandi af ýsu og ufsa.