Arnar HU 1 á landleið

Arnar HU 1 er væntanlegur í land við Sauðárkrókshöfn á morgun. Í skipinu eru um 617 tonn af afla, mest af ufsa eða um 290 tonn. Þá eru um 156 tonn af gullkarfa, um 92 tonn af þorski og um 58 tonn af ýsu, en minna í öðrum tegundum. Aflaverðmæti er áætlað um 380 milljónir og kassafjöldi 19.510.

“Túrinn fór vel af stað, það var eiginlega mokveiði af ufsa frá fyrsta degi.” Sagði Viktoría Ósk Jóhannesdóttir, annar stýrimaður. “Við hófum veiðar fyrir vestan en héldum svo suður á Fjöllin, þar var hellingu af ufsa, en þó ekki alveg gefins svo að nálarnar fengu að vinna. Þaðan héldum við á Halann í nokkra daga áður en við fikruðum okkur austur á Grunninn. Veðrið var svona upp og ofan, en það gerði ekkert til því það var nóg að gera allan túrinn.”

Þá sagði Viktoría að hún sjálf og bátsmaðurinn hafi verið sérstaklega glöð með að fá tækifæri til þess að æfa áhöfnina í heild í netavinnunni, þar með talið vélstjórana.

Áhöfnin á Arnari HU er í skýjunum með ufsaveiðina í þessari veiðiferð, enda hefur lítið fengist af ufsa síðustu misseri og mikið fagnaðarefni að hann sé farinn að veiðast aftur.

Meðfylgjandi mynd af saumakonunum Viktoríu og Jónasi Þorvaldssyni bátsmanni eru frá þeim síðarnefnda.