FISK-Seafood hefur mótast í gegnum áratugina með kaupum og samruna nokkurra fyrirtækja í sjávarútvegi. Meðal þeirra félaga sem hafa sameinast undir merkjum FISK-Seafood eru Fiskiðja Sauðárkróks hf., Útgerðarfélag Skagfirðinga hf., Skjöldur hf., Hraðfrystihús Grundarfjarðar hf. og Skagstrendingur hf.
Félagið er jafnframt 100% eigandi Soffaníasar Cecilssonar á Grundarfirði – nánar má lesa um það hér.
FISK-Seafood er eitt af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins og er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga. Fyrirtækið starfar á öllum stigum virðiskeðjunnar – frá veiðum og vinnslu til sölu og útflutnings. FISK-Seafood býr yfir víðtækri þekkingu og reynslu í sjálfbærri nýtingu takmarkaðra náttúruauðlinda. Þessi þekking og virðing fyrir umhverfinu endurspeglast í allri starfsemi félagsins.
Ein af lykilstoðum FISK-Seafood er hæft, traust og áreiðanlegt starfsfólk – bæði til sjós og lands. Fyrirtækið leggur áherslu á að skapa öruggan og góðan vinnustað þar sem velferð starfsmanna er í fyrirrúmi. FISK-Seafood rekur öfluga öryggisstefnu sem miðar að því að tryggja heilsu og öryggi allra starfsmanna.
Jafnrétti er grunnstef í starfsemi FISK-Seafood. Fyrirtækið hvetur bæði konur og karla til að sækja um störf, greiðir sömu laun fyrir sömu vinnu og útilokar hvers kyns mismunun.
FISK-Seafood starfar á alþjóðlegum markaði og eru afurðir félagsins seldar víða um heim. Við stjórnun og ákvarðanatöku er ætíð haft að leiðarljósi að mæta þörfum og óskum markaðarins með ábyrgum og faglegum hætti.
Framkvæmdastjóri FISK-Seafood er Friðbjörn Ásbjörnsson.

FISK Seafood var stofnað árið 1955 og hefur í rúma sjö áratugi verið virkur þátttakandi í íslenskum sjávarútvegi. Frá upphafi hefur fyrirtækið byggt starfsemi sína á traustum grunni fagmennsku, þekkingar og virðingar fyrir auðlindum hafsins. Með stöðugri þróun og ábyrgri nýtingu hefur FISK Seafood vaxið og þróast í takt við tímann, á sama tíma og rætur fyrirtækisins í skagfirsku samfélagi hafa haldist sterkar.