„Á veiðum í blíðu veðri“

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 114 tonn og uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan hafði samband við Guðmund Ágúst Guðmundsson stýrimann og spurði um túrinn.

„Við vorum fjóra sólarhringa á veiðum í blíðu veðri. Við byrjuðum fyrir austan á Digranesflaki, færðum okkur svo á Brettingstaði og enduðum svo á Rifsbanka. Veiðin var þokkalega á Digranesflaki og Brettingstöðum en góð á Rifsbanka,“ sagði Guðmundur.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter

Málmey