FISK-Seafood hefur mótast í gegnum áratugina með kaupum og samruna nokkurra fyrirtækja í sjávarútvegi. Meðal þeirra félaga sem hafa sameinast undir merkjum FISK-Seafood eru Fiskiðja Sauðárkróks hf., Útgerðarfélag Skagfirðinga hf., Skjöldur hf., Hraðfrystihús Grundarfjarðar hf. og Skagstrendingur hf.
Félagið er jafnframt 100% eigandi Soffaníasar Cecilssonar á Grundarfirði – nánar má lesa um það hér.
FISK-Seafood er eitt af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins og er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga. Fyrirtækið starfar á öllum stigum virðiskeðjunnar – frá veiðum og vinnslu til sölu og útflutnings. FISK-Seafood, sem stofnað var árið 1955, býr yfir víðtækri þekkingu og reynslu í sjálfbærri nýtingu takmarkaðra náttúruauðlinda. Þessi þekking og virðing fyrir umhverfinu endurspeglast í allri starfsemi félagsins.
Ein af lykilstoðum FISK-Seafood er hæft, traust og áreiðanlegt starfsfólk – bæði til sjós og lands. Fyrirtækið leggur áherslu á að skapa öruggan og góðan vinnustað þar sem velferð starfsmanna er í fyrirrúmi. FISK-Seafood rekur öfluga öryggisstefnu sem miðar að því að tryggja heilsu og öryggi allra starfsmanna.
Jafnrétti er grunnstef í starfsemi FISK-Seafood. Fyrirtækið hvetur bæði konur og karla til að sækja um störf, greiðir sömu laun fyrir sömu vinnu og útilokar hvers kyns mismunun.
FISK-Seafood starfar á alþjóðlegum markaði og eru afurðir félagsins seldar víða um heim. Við stjórnun og ákvarðanatöku er ætíð haft að leiðarljósi að mæta þörfum og óskum markaðarins með ábyrgum og faglegum hætti.
Framkvæmdastjóri FISK-Seafood er Friðbjörn Ásbjörnsson.
Gamlar myndir úr rekstri FISK-Seafood.

Öryggismarkmið FISK-Seafood eru sett fram til að skipuleggja, stjórna og mæla árangur á þeim þáttum sem hafa áhrif á öryggi og velferð starfsmanna.

Starfsmannastefna FISK-Seafood gengur út frá þeirri vissu að árangur í rekstri fyrirtækisins byggist öðru fremur á þekkingu og metnaði starfsfólks.

FISK-Seafood stuðlar að ábyrgri meðferð persónuupplýsinga, hvort sem það eru upplýsingar um starfsmenn eða viðskiptavini.

Gæða- og matvælaöryggisstefna er sett svo að tryggja megi að framleiðslan sé örugg, samkvæmt umsömdum gæðum og að hún uppfylli ávallt væntingar viðskiptavina.

FISK-Seafood leitast við að starfa í sátt við umhverfi og samfélag. Meðal annars með því að draga úr kolefnisspori samstæðunnar með kolefnishlutleysi að markmiði. Móðurfélag FISK, Kaupfélag Skagfirðinga, hefur sett fram sjálfbærnistefnu fyrir samstæðuna í heild.

FISK-Seafood leggur áherslu á að miðla traustum, skýrum og áreiðanlegum upplýsingum um málefni er tengjast útgerð, vinnslu og sölu afurða.

FISK-Seafood leggur áherslu á heiðarleika í viðskiptum. Við sýnum jákvæðni í verki og tali og við tökum ábyrgð á ákvörðunum okkar og virðum skoðanir annarra.

FISK-Seafood vill stuðla að góðum samskiptum og starfsanda á vinnustað. Brugðist er við ábendingum um einelti, áreitni, áreiti eða ofbeldi eins fljótt og kostur er.