Aðeins verið vart við ufsa

 Í Arnar HU 1, Fréttir

Frystitogarinn Arnar HU1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Aflaverðmæti um borð er um 300 milljónir og magn úr sjó er um 771 tonn.. Heimasíðan hafði samband við Guðmund Henry Stefánsson skipstjóra og spurði um túrinn.

„Við fórum frá Sauðárkróki 9. júlí og höfum verið að veiðum í fínu veðri allan túrinn, á Vestfjarðarmiðum og Suðvesturmiðum. Það hefur aðeins verið vart við ufsa og mikið af gullkarfa og ýsu. Það verður landað 19.500 kössum og 300 milljónum,“ sagði Guðmundur Henry.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter

Málmey