Aflinn var blandaður

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 149 tonn og uppistaða aflans var m.a. þorskur, ýsa og ufsi. Heimasíðan hafði samband við Ágúst Óðinn Ómarsson skipstjóra og spurði um túrinn.

„Veiðiferðin var um sex dagar á veiðum. Við höfum verið á Sléttugrunni, Langanesgrunni og Digranesflaki. Aflinn er blandaður en tregt í þorski á þessum svæðum. Yfirleitt ágætisveður, nema síðasta daginn, þá brældi,“ sagði Ágúst.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter

Málmey