„Ágæt veiði framan af“

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 140 tonn og uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan hafði samband við Ágúst Ómarsson skipstjóra og spurði um túrinn.

„Við vorum fjóra daga á veiðum og vorum á Digranesflaki og  Sléttugrunni. Það var ágæt veiði framan af en minna þegar brældi. Við fengum blíðu fyrstu tvo dagana síðan var leiðinlegt veður,“ sagði Ágúst.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter