Ágætis fiskerí

 Í Fréttir, Sigurborg SH 12

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla var um 85 tonn og uppistaða aflans var skarkoli. Heimasíðan hafði samband við Guðbjörn Jónsson stýrimann og spurði um veiðiferðina.

„Vorum þessa sex daga veiðiferð, og um fimm daga á veiðum, í góðu veðri og ágætis fiskeríi. Það var jöfn veiði allan tímann, aflinn tæp 90 tonn. Við náðum í restina á smá ufsaveiði á Eldeyjarbanka en annars vorum við vestur af Garðskaga allan túrinn,“ sagði Guðbjörn.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter