„Ágætis kropp af góðum þorsk“

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 58 tonn, uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan hafði samband við Ágúst Ómarsson skipstjóra og spurði nokkurra spurninga um túrinn.

„Við vorum tæpa tvo daga á veiðum og vorum vestarlega á Strandagrunni. Það var ágætis kropp af góðum þorsk og blíðuveður,“ sagði Ágúst.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter