„Ágætis þorskveiði“
Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 168 tonn, uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra.
„Við vorum vestur á Kanti og á Halanum í ágætis þorskveiði, en í fremur rólegri ufsa veiði. Veiðiferðin að þessu sinni var fimm sólarhringar og veðrið var gott allan túrinn“ segir Þórarinn.